Skuldir Samsonar og Björgólfs eldri einnig gerðar upp 22. júlí 2010 12:19 Björgólfur Thor mun einnig gera upp 11 milljarða króna skuld vegna viðskipta föður hans og gera upp skuldir Samsonar eignarhaldsfélags, en þeir feðgar áttu það félag sameiginlega.
Skuld Björgólfsfeðga við Arion banka upp á sex milljarða króna er hluti af heildarskuldauppgjöri Björgólfs Thors og Novators. Í fyrra greindi Fréttablaðið frá því að feðgarnir höfðu gert bankanum tilboð um að greiða fjörutíu til fimmtíu prósent af tæplega sex milljarða skuld þeirra við bankann og var það umdeilt. Skuldir Björgólfs Thors og Novators nema samtals 1.200 milljörðum króna. Skuldir vegna Actavis vega þar langmest. Persónulegar eigur Björgólfs Thors eru hluti af uppgjörinu, þar á meðal húseign í Reykjavík og sumarhús við Þingvelli. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er skuld Björgólfsfeðga við Arion banka upp á 6 milljarða króna hluti af uppgjörinu og verður hún greidd að fullu. Björgólfur Thor mun einnig gera upp 11 milljarða króna skuld vegna viðskipta föður hans og gera upp skuldir Samsonar eignarhaldsfélags, en þeir feðgar áttu það félag sameiginlega. Margir bankar taka þátt í samkomulaginu en meðal þeirra eru Deutche Bank, Barclays, skilanefnd Glitnis og Landsbankans, Straumur og Arion banki. Samkvæmt samkomulaginu munu skuldir verða gerðar upp að fullu og ekki gefnar eftir. Allar eignir Björgólfs Thors og Novators liggja þar til grundvallar, en þekkt alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki hefur gert ítarlegt mat á verðmæti þeirra. Björgólfur Thor verður áfram hluthafi í Actavis, pólska fjarskiptafyrirtækinu Play, CCP og Verne Holding. Allur arður af þessum eignarhlutum og verðmæti, komi til sölu, munu ganga til uppgjörs skulda Björgólfs Thors. Gert er ráð fyrir að skuldauppgjörið taki fjögur til sex ár. Ekki fékkst viðtal við Björgólf Thor í morgun en haft er eftir honum í tilkynningu að hann hafi alltaf stefnt að því að ljúka uppgjöri við lánardrottna sína með sóma. Björgólfur Thor segir að eftir hrunið hafi hann um tíma staðið frammi fyrir persónulegu gjaldþroti og bankarnir hefðu getað knúið það fram. Samkomulagið þýði að hægt verði að byggja upp og selja eignirnar á eðlilegu verði þegar fram líði stundir og þannig fáist meira upp í skuldir. Björgólfur Thor segist fullviss um að hann hafi engin lög brotið í viðskiptum sínum á undanförnum árum. Hann hafi beðið Íslendinga afsökunar á augljósum mistökum í aðdraganda bankahrunsins og vilji ítreka þá afsökunarbeiðni. Björgólfur segist enn búa að traustu viðskiptasambandi við öfluga erlenda banka og ætli sér að byggja upp á nýjan leik.
Tengdar fréttir Lánið er það síðasta undir sólinni sem ætti að afskrifa Steingrímur J. vill ekki tjá sig um niðurfellingu láns Björgólfsfeðga sem ráðherra. Sem „borgari þessa lands“ fordæmir hann ósk feðganna. Viðskiptaráðherra svelgdist á þegar hann las fréttina um málið. 9. júlí 2009 06:00 Segir engar skuldir verða afskrifaðar Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður hefur gengið frá samkomulagi við lánardrottna sína um heildaruppgjör skulda. Fram kemur í tilkynningu frá Björgólfi að engar skuldir verði afskrifaðar. 22. júlí 2010 00:01 Ég bið ykkur afsökunar Ég undirritaður, Björgólfur Thor Björgólfsson, bið alla Íslendinga afsökunar á mínum þætti í eigna- og skuldabólunni sem leiddi til hruns íslenska bankakerfisins. Ég bið ykkur afsökunar á andvaraleysi gagnvart þeim hættumerkjum sem hrönnuðust upp. Ég biðst afsökunar á að hafa ekki auðnast að fylgja hugboði mínu þegar ég þó kom auga á hættuna. Ég bið ykkur afsökunar. 14. apríl 2010 06:00 Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira
Lánið er það síðasta undir sólinni sem ætti að afskrifa Steingrímur J. vill ekki tjá sig um niðurfellingu láns Björgólfsfeðga sem ráðherra. Sem „borgari þessa lands“ fordæmir hann ósk feðganna. Viðskiptaráðherra svelgdist á þegar hann las fréttina um málið. 9. júlí 2009 06:00
Segir engar skuldir verða afskrifaðar Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður hefur gengið frá samkomulagi við lánardrottna sína um heildaruppgjör skulda. Fram kemur í tilkynningu frá Björgólfi að engar skuldir verði afskrifaðar. 22. júlí 2010 00:01
Ég bið ykkur afsökunar Ég undirritaður, Björgólfur Thor Björgólfsson, bið alla Íslendinga afsökunar á mínum þætti í eigna- og skuldabólunni sem leiddi til hruns íslenska bankakerfisins. Ég bið ykkur afsökunar á andvaraleysi gagnvart þeim hættumerkjum sem hrönnuðust upp. Ég biðst afsökunar á að hafa ekki auðnast að fylgja hugboði mínu þegar ég þó kom auga á hættuna. Ég bið ykkur afsökunar. 14. apríl 2010 06:00