Sturla: Verð að nýta þau tækifæri sem ég fæ Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 27. janúar 2010 16:00 Sturla Ásgeirsson í leiknum á móti Rússlandi. Mynd/DIENER
Sturla Ásgeirsson átti frábæra innkomu með íslenska landsliðinu gegn Rússlandi á Evrópumeistaramótinu í handbolta í gær. Ísland vann leikinn örugglega, 38-30, og skoraði Sturla fimm mörk úr fimm skotum.„Það var stórskemmtilegt að fá að spila sinn fyrsta leik á mótinu. Staðan í leiknum var þó ekki erfið þegar ég kom inn enda Rússarnir greinilega engan veginn klárir í leikinn," sagði Sturla í viðtali við Vísi í dag.„Það var líka ágætt að geta hvílt lykilmenn. Mér fannst við hinir sem komu inn skila okkar mjög vel og ég get verið sáttur við mína frammistöðu. Ég nýtti þessi færi sem ég fékk vel."Þó svo að Sturla hafi ekkert spilað með liðinu til þessa á mótinu var ekki að sjá að hann væri eitthvað ryðgaður.„Við erum búnir að æfa mjög vel og ég hef verið í þessu hlutverki nokkuð lengi. Ég verð í því áfram á meðan að Gaui [Guðjón Valur] er að spila eins og engill. Maður verður að nýta þau fáu tækifæri sem ég fæ og sýna að maður eigi skilið að vera í liðinu og eigi erindi í það."Þetta er í annað sinn sem Sturla tekur þátt í stórmóti í handbolta með íslenska landsliðinu en það fyrsta var á Ólympíuleikunum í Peking.„Menn voru að skjóta því að mér að ég ætti bara að hætta eftir Ólympíuleikana enda strax kominn með verðlaun. En ég hef mjög gaman af því að taka þátt í þessu enda frábær stemning í hópnum."Sturla á von á hörkuleik gegn Noregi á morgun.„Það verður allt undir hjá báðum liðum. Mér skilst að þeir verði að vinna með fjórum mörkum og treysta á að Danir tapi sínu leik og þá eru þeir komnir áfram. Þetta verður því brjálaður leikur sem bæði lið vilja vinna."„Við ætlum okkur að sjálfsögðu að tryggja okkur áfram með sigri í þessum leik. Það kemur ekkert annað til greina."
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira