Neysluvatni stefnt í hættu Hafsteinn Hauksson skrifar 14. ágúst 2010 18:30
Grunur leikur á að seyruvökvi úr rotþróm hafi verið látinn leka út í umhverfið á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Heilbrigðisfulltrúi segir neysluvatni hætta búin. Sumarhúsaeiganda í Kárastaðalandi á Þingvöllum grunar að Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands, sem fengin hafði verið til að dæla upp úr rotþróm á svæðinu, hafi látið seyrulög renna út í umhverfið í þjóðgarðslandinu. Maðurinn varð var við stóran gámabíl um 100 metra frá Þingvallavegi seinni part dags í gær, og þegar hann gáði betur að hafi megn óþefur gosið upp. Hann hafi svo séð slöngubarka leiddan um 15 metra úr bílnum og út í móa þar sem sérkennilegur vökvi hafi lekið út, væntanlega úr rotþróm á svæðinu. Sumarhúsaeigandinn hefur sent heilbrigðiseftirlitinu á Suðurlandi afar harðort erindi þar sem hann fer fram á að eftirlitið taki á málinu. Í erindinu lýsir hann þungum áhyggjum af því að verktakinn hafi losað úr tanknum á vatnsverndarsvæði. Hann segir sumarhúsaeigendur í Kárastaðalandi fá neysluvatn sitt úr borholum sem taki vatn úr sama grunnvatsngeymi og seyrulögurinn síist nú niður í og brotið sé því bæði gróft og viðurstyggilegt. Birgir Þórðarson, fulltrúi á mengunarvarnasviði heilbrigðiseftirlitsins, hafði ekki heyrt af málinu þegar fréttastofa hafði samband. Hann segir málið þó alvarlegt ef satt reynist enda um vatnsverndarsvæði að ræða. Heilbrigðiseftirlitið muni skoða málið eins fljótt og auðið er. Ekki náðist í forsvarsmann Holræsa- og stífluþjónustunnar í dag, en aðrir starfsmenn vildu ekki tjá sig um málið.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira