Norður-Kórea hætti við árás 21. desember 2010 00:45 Seúl Íbúar Suður-Kóreu mótmæltu í Seúl í gær.nordicphotos/afp
Norður-Kóreumenn ætla ekki að svara heræfingu suður-kóreska hersins á eyjunni Yeonpyeong í gær. Áður höfðu yfirvöld í Norður-Kóreu hótað að bregðast við æfingunni af hörku. Norður-Kóreumenn sögðu æfingar Suður-Kóreumanna vera hernaðarlega ögrun. Ríkisfjölmiðlar í norðrinu höfðu eftir hernum að æfingarnar væru ekki þess virði að við þeim yrði brugðist. Síðast þegar svipaðar heræfingar stóðu yfir á eyjunni gerðu Norður-Kóreumenn árás á hana. Þá létust fjórir og tugir slösuðust. Fjöldi húsa varð eldi að bráð. Flestir íbúar eyjarinnar hafa nú flúið hana. Kínverjar og Rússar hvöttu í gær bæði ríkin til að forðast vopnuð átök. Viðræðum í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna var hætt um helgina eftir að Kínverjar neituðu að samþykkja yfirlýsingu þar sem Norður-Kóreumenn voru gagnrýndir. Bill Richardson, ríkisstjóri í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum, er staddur í Norður-Kóreu. Hann hefur rætt við æðstu yfirmenn hersins þar og reynt að miðla málum. Fréttastofan CNN segir Norður-Kóreumenn hafa sagt Richardson að þeir myndu hleypa kjarnorkueftirlitsmönnum frá SÞ aftur inn í landið, en þetta hefur ekki verið staðfest.- þeb
Fréttir Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira