Viðskipti innlent

Lánadrottnar styðja framlengingu á greiðslustöðvun Stoða

Stjórn Stoða hefur ákveðið að sækja um framlengingu á greiðslustöðvun sinni og verður málið tekið fyrir hjá héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Júlíus Þorfinnsson talsmaður Stoða segir að fimm stærstu lánadrottnar félagsins styðji áframhaldandi greiðslustöðvun.

Eftir að beiðnin um greiðslustöðvun hefur verið lögð fram hefur dómurinn viku til að taka afstöðu til málsins.

Júlíus Þorfinnsson segir að þeir séu vongóðir um að framlenging á greiðslustöðvuninni verði samþykkt í ljósi þess að hún er studd af lánadrottnum félagsins.

Forráðamenn Stoða vonast til þess að greiðslustöðvunin erði framlengd um 2 til 3 mánuði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×