Viðskipti innlent

Landic Property selur norrænar eignir sínar

Landic Property hefur gengið frá sölu á fasteignasafni sínu í Finnlandi og skrifað undir samning um sölu á dönskum og sænskum dótturfélögum. Kaupandinn er fjárfestingafélagið Trackside Holding.

Í tilkynningu segir að Landic Property hf. mun eftir viðskiptin halda eftir 20% eignarhlut í dönsku og sænsku félögunum. Samningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki lánveitenda. Eigendur fjárfestingafélagsins Trackside Holding eru umsvifamiklir fjárfestar í fasteignum í Evrópu.

Landic Property hefur síðastliðna mánuði unnið að endurskipulagningu og stefnumótun fyrir félagið. Fram hefur komið að einn þáttur endurskipulagningar Landic Property var hugsanleg sala erlendra dótturfélaga. Þessi samningur við Trackside Holding er mikilvægur áfangi í endurskipulagningu Landic Property.

UBS fjárfestingabankinn og Catella Corporate Finance hafa veitt ráðgjöf við söluferlið og endurskipulagninguna sem unnin hefur verið í nánu samráði við lánardrottna félagins, en fulltrúar þeirra skipa nýkjörna stjórn Landic Property hf.

Landic Property mun í framhaldinu einbeita sér að rekstri fasteigna á Íslandi þar sem dótturfélag þess, Landic Ísland, stærsta fasteignafélag landsins, á yfir 120 fasteignir sem samtals eru um 400 þúsund fermetrar.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×