Innlent

Persónulegar deilur innan Borgarahreyfingarinnar harmaðar

Félagsfundur Borgarahreyfingarinnar, sem stóð framundir miðnætti, harmar þann skaða, sem persónulegar deilur meðal stjórnarmanna og þinghópsins hafa valdið hreyfingunni. Þess er krafist að þingmenn og stjórnarmenn geri út um þessar deilur þannig að ekki hljótist frekari skaði af, og einbeiti sér að því að hrinda stefnumálum Borgarahreyfingarinnar í framkvæmd.

Til þess hafi þingmennirnir verið kjörnir. Engin fjögurra þingmanna flokksins mætti á fundinn, sem boðað var til með skömmum fyrirvara, og harmar fundurinn það, í ályktun, sem þar var samþykkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×