Áframhaldandi bygging tónlistarhússins tryggð 3. apríl 2009 08:45
Austurhöfn-TR hefur eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu Tónlistar - og ráðstefnuhússins (TR), ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2 eftir að samningsskilmálar þar um hafa nú verið undirritaðir af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjóra og Nýsi hf. Í tilkynningu segir að með samkomulaginu tekur Austurhöfn við öllum réttindum og skyldum sem fylgja samningum um byggingu og rekstur TR. Áframhaldandi fjármögnun framkvæmdanna hefur jafnframt verið tryggð og er hún hluti af samkomulaginu. Áætlaður kostnaður við að ljúka verkefninu er 14,5 milljarðar króna, að meðtöldum vöxtum á byggingartíma. Fyrr í vikunni var gengið frá samkomulagi Austurhafnar-TR og ÍAV, Íslenskra aðalverktaka, um verkframkvæmdina allt til loka. Það byggir í aðalatriðum á fyrirliggjandi samningum en tekur á breyttum verktíma, ýmsum viðaukum, sparnaðarmöguleikum og öðrum ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að tryggja farsæl verklok. Miðað er við að verkinu ljúki í febrúar 2011 og að húsið verði tekið í notkun í apríl það ár. Um 150 starfsmenn starfa nú við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins, þeim verður nú fjölgað í 200 og í sumar er áætlað að starfsmannafjöldinn verði kominn yfir 300 manns. Gert er ráð fyrir að nú hefjist að nýju vinna við fyrsta áfanga bílakjallara og að lokið verði við hönnun lóðar á næstunni, svo unnt verði að vinna við næsta nágrenni TR sumarið 2010. Í samræmi við yfirlýsingu borgarstjóra og menntamálaráðherra frá 19. febrúar síðastliðnum er þegar farið að huga að möguleikum á breyttri og aukinni nýtingu hússins. Góðir möguleikar eru á því að það geti tekist, án þess að gera þurfi verulegar breytingar á húsinu.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira