Laun á vinnumarkaði hækkuðu um 30% árin 2005 til 2008 17. febrúar 2009 14:59
Laun hækkuðu um 30% á almennum vinnumarkaði á árunum 2005-2008, að því er fram kemur í Launagreiningu ParX Viðskiptaráðgjafar IBM. Í tilkynningu frá ParX segir að laun hækkuðu á tímabilinu mest hjá fjármála- og tryggingafélögum, eða um 39%. Þá hækkuðu laun í framleiðslu og iðnaði um 29% og 20% í verslun og þjónustu. Laun hækkuðu um tæp 11% frá september 2007 til september 2008. Á því tímabili var hækkunin mest hjá hópum í sölu, afgreiðslu- og þjónustustörfum og í iðnaðar- og tæknistörfum, eða 15%. Hækkunin var minnst í hópi ósérhæfðra starfsmanna, eða 4%. Þetta er svipuð hækkun og á árinu á undan en laun hækkuðu þá um 9% frá september 2006 til september 2007. Til samanburðar má nefna að launavísitala Hagstofunnar hækkaði um 30% frá 2005-2008. Þegar mælingar Hagstofunnar frá því í október 2008 eru skoðaðar hefur launavísitalan hækkað um að meðaltali 0,13% á síðustu þremur mánuðum ársins á móti 0,37% yfir sama tímabil 2007. „Þessar tölur gefa til kynna að launaskriði síðustu ára á Íslandi sé lokið. Líklegt er að tölur sem sýna fram á launalækkanir komi fram á næstu vikum", segir Jón Emil Sigurgeirsson umsjónarmaður Launagreininga ParX. Hann segir að launavísitala Hagstofunnar hafi einungis lækkað í fjórum mælingum sem eru gerðar á milli mánaða frá 1989, þar af var lækkun mest í október árið 1991, eða 1,2%. „Það má því færa rök fyrir því að nú hafi skapast ný viðmið við launaákvarðanir á almennum vinnumarkaði miðað við tölur síðasta ársfjórðungs. Niðurstöður sýna ekki lækkanir á launum enn sem komið er en gera má ráð fyrir að þær komi fram í launagreiðslum fyrirtækja fljótlega á árinu," segir Jón Emil.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira