Óhugsandi að Samfylkingin slíti ríkisstjórnarsamstarfinu Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. ágúst 2009 13:17 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Mynd/GVA
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist alls ekki vera þeirrar skoðunar að ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og VG standi og falli með Icesave málinu. „Í fyrsta lagi finnst mér nú skrýtið ef ríkisstjórnarsamstarfið á að snúast um þetta mál umfram annað. Hvað segir það um þingið og stöðu þess ef þingmenn eiga ekki neinn annan kost en að kjósa eins og framkvæmdavaldið ætlast til? Og framkvæmdavaldið lítur svo á að ef þingmenn geri það ekki þá sé ríkisstjórnin bara fallin?" spyr Sigmundur Davíð. Að auki segist Sigmundur Davíð telja að það sé óhugsandi að Samfylkingin slíti ríkisstjórnarsamstarfinu á meðan að Evrópusambandsmálið er í vinnslu. Sigmundur Davíð segir að Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra eigi heiður skilinn fyrir að vilja ná niðurstöðu í málinu sem allir þingmenn geti greitt atkvæði með. Það sé griðarlega mikilvægt í svona stóru og erfiðu máli sem sé tengt samskiptum við útlönd. „Þess vegna finnst mér það vera alveg gífurleg vonbrigði hvernig Samfylkingin, og það sem ég vil meina að sé spunadeildin þar, bregst við þessu. Í stað þess að vinna að þessu með því að mynda breiða samstöðu þá koma þeir með einhverja gervifyrirvara, sem að allir sáu nú strax í gegnum, og síðan er ráðist á Ögmund og honum nánast hótað því beint að hann sé að eyðileggja ríkisstjórnina ef hann ætlar sér að halda áfram á þessari braut," segir Sigmundur Davíð í samtali við Vísi. Sjálfur er Sigmundur Davíð harður andstæðingur Icesave samningsins „Fáránleiki þess að halda því fram að styrkja megi gengið með stórkostlegri erlendri skuldsetningu má vera flestum ljós. Það ætti ekki að þurfa Hagfræðistofnun Háskólans til að benda á það," segir Sigmundur Davíð á bloggsíðu sinni.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira