Handbolti

Arnór með fimm mörk

Eiríkur Stefan Ásgeirsson skrifar
Arnór Atlason í leik með íslenska landsliðinu.
Arnór Atlason í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / AFP
Arnór Atlason skoraði fimm mörk fyrir FC Kaupmannahöfn sem tapaði fyrir Hamburg, 34-27, á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag.

Staðan í hálfleik var 20-16, Hamburg í vil.

Hamburg er í öðru sæti C-riðils með sex stig og FCK í því þriðja með fjögur. Ciudad Real er á toppnum með fullt hús - átta stig eftir fjóra leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×