Viðskipti innlent

Skilanefnd skellir skuldinni á starfsmenn sína

Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans.
Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans. MYND/Pjetur

„Lárus Finnbogason var ekkert inni í þessu máli," segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans, spurður út í fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum í Byr til Reykjavík Invest en Lárus Finnbogason formaður skilanefndarinnar er endurskoðandi félagsins. Salan á bréfunum var tilkynnt á stjórnarfundi hjá Byr síðastliðinn föstudag en skilanefndin ákvað á fundi í gær að ekkert yrði af henni. Lárus vék af þeim fundi vegna tengsla sinna við Reykjavík Invest að sögn Páls. Hann segir að starfsmenn nefndarinnar hafi gengið of langt.

Aðspurður hvenær fundurinn var haldinn svarar Páll því að hann hafi verið haldinn síðdegis. Spurður hvenær síðdegis þá vildi Páll ekki svara því. Þegar blaðamaður spurði hvort fundurinn hafi átt sér stað fyrir fréttir Stöðvar 2 svarar Páll: „Ég staðfesti ekki hvenær þessi fundur var haldin." Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að í það minnsta tveir skilanefndarmenn hafi ekki haft hugmynd um söluna fyrr en þeir sáu frétt Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Þrátt fyrir ákvörðun skilanefndarinnar í gær þá barst Byr tilkynning á föstudag um að félagið Reykjavík Invest ættu sannarlega 2,6 prósent stofnfjárhlut í Byr og hefðu þar af leiðandi kosningarétt á aðalfundi bankans sem verður haldin á morgun.

Þegar Páll er spurður hverju þetta sæti svarar hann því til að starfsmenn nefndarinnar hafi tekið ákvörðun um viðskiptin og að skilanefndin hefði átt eftir að fjalla um þau og veita samþykki sitt. „Það voru ákveðin mistök sem áttu sér stað. Þetta fór of langt."

Reykjavík Invest var engu að síður með atkvæðarétt þangað til í morgun þegar Byr breytti lista sínum yfir stofnfjáreigendur eftir að skilanefndin hafði óskað eftir því.

Blaðamaður spurði þá Pál hvort skilanefndin hugðist ekki taka ábyrgð á þessum mistökum svarar Páll: „Skilanefndin axlar ábyrgð með því að hafna þessu. Hún viðurkennir þar af leiðandi að þarna hafi ekki verið nægilega vel að verki staðið."






Tengdar fréttir

Formaður Skilanefndar í felum

Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, hyggst ekki tjá sig við fjölmiðla um viðskipti Landsbankans með hlut í Byr sparisjóði. Sagt var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að skilanefnd Landsbankans hefði selt 2,6% hlut í Byr til Reykjavík Invest, sem er lítilð fjárfestingafélag, rúmri viku fyrir

Stofnfjáreigandalistinn væntanlegur síðar í dag

Listi stofnfjáreiganda var tekinn út af vefsvæði Byrs til þess að uppfæra hann. Tilefnið er það að á föstudaginn var það fært til bókar að eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest hefði keypt 2,6 prósentu stofnfjárhlut í Byr af skilanefnd Landsbankans.

Fjármálaeftirlitið kannar stofnfjársölu Landsbankans

„Það er verið að láta kanna þetta," segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins um fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum Byr til eignarhaldsfélagsins Reykjavík Invest sem fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá í gær.

Segjast ekki hafa komið nálægt tilraun til stofnfjárkaupa

„Við komum ekkert að þessari sölu," segir Rakel Gylfadóttir sem býður sig fram ásamt Arnari Bjarnasyni í stjórn Byrs. Arnar á eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest sem hugðist kaupa stofnfjárbréf af skilanefndar Landsbankans en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, hugðist hafa milligöngu um það.

Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað

Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar.

Listi yfir stofnfjáreigendur Byr hverfur

Listi yfir stofnfjáreigendur Byrs var fjarlægður af heimasíðu Byrs í morgun en þar kom fram að Reykjavík Invest ætti 2,6 prósent hlut í bankanum þrátt fyrir tilkynningu skilanefndar Landsbankans í gær um að viðskiptin hefðu ekki átt sér stað.

FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu.

Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu

Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×