Stofnfjáreigandalistinn væntanlegur síðar í dag Valur Grettisson skrifar 12. maí 2009 13:36 Byr.
Listi stofnfjáreiganda var tekinn út af vefsvæði Byrs til þess að uppfæra hann. Tilefnið er það að á föstudaginn var það fært til bókar að eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest hefði keypt 2,6 prósentu stofnfjárhlut í Byr af skilanefnd Landsbankans. Skilanefndin dró viðskiptin til baka í gærkvöldi eftir að fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá því að Lárus Finnbogason, formaður skilanefndarinnar, hafði selt hlutinn til félagsins og væri að auki endurskoðandi þess. Samkvæmt upplýsingum frá Byr þá er listinn væntanlegur bráðlega inn á vefinn, uppfærður, en það var í gærkvöldi sem óskað var eftir því af hálfu skilanefndarinnar að slíkt yrði gert. Vísir sagði frá því fyrr í morgun að Fjármálaeftirlitið væri að kanna viðskipti skilanefndarinnar við félagið Reykjavík Invest.
Tengdar fréttir Vilja stýra Byr Hópur stofnfjáreigenda og annarra velunnara Byrs sparisjóðs hefur ákveðið að bjóða sig til forystustarfa í sparisjóðnum á aðalfundi hans þann 13. maí. Í hópnum er meðal annars Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Marels. 10. maí 2009 15:15 Fjármálaeftirlitið kannar stofnfjársölu Landsbankans „Það er verið að láta kanna þetta," segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins um fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum Byr til eignarhaldsfélagsins Reykjavík Invest sem fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá í gær. 12. maí 2009 10:45 Segjast ekki hafa komið nálægt tilraun til stofnfjárkaupa „Við komum ekkert að þessari sölu," segir Rakel Gylfadóttir sem býður sig fram ásamt Arnari Bjarnasyni í stjórn Byrs. Arnar á eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest sem hugðist kaupa stofnfjárbréf af skilanefndar Landsbankans en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, hugðist hafa milligöngu um það. 12. maí 2009 11:52 Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar. 11. maí 2009 21:44 Listi yfir stofnfjáreigendur Byr hverfur Listi yfir stofnfjáreigendur Byrs var fjarlægður af heimasíðu Byrs í morgun en þar kom fram að Reykjavík Invest ætti 2,6 prósent hlut í bankanum þrátt fyrir tilkynningu skilanefndar Landsbankans í gær um að viðskiptin hefðu ekki átt sér stað. 12. maí 2009 12:35 FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu. 11. maí 2009 19:10 Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. 11. maí 2009 18:05 Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira
Vilja stýra Byr Hópur stofnfjáreigenda og annarra velunnara Byrs sparisjóðs hefur ákveðið að bjóða sig til forystustarfa í sparisjóðnum á aðalfundi hans þann 13. maí. Í hópnum er meðal annars Hörður Arnarson, fyrrverandi forstjóri Marels. 10. maí 2009 15:15
Fjármálaeftirlitið kannar stofnfjársölu Landsbankans „Það er verið að láta kanna þetta," segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins um fyrirhugaða sölu á stofnfjárbréfum Byr til eignarhaldsfélagsins Reykjavík Invest sem fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá í gær. 12. maí 2009 10:45
Segjast ekki hafa komið nálægt tilraun til stofnfjárkaupa „Við komum ekkert að þessari sölu," segir Rakel Gylfadóttir sem býður sig fram ásamt Arnari Bjarnasyni í stjórn Byrs. Arnar á eignarhaldsfélagið Reykjavík Invest sem hugðist kaupa stofnfjárbréf af skilanefndar Landsbankans en formaður nefndarinnar, Lárus Finnbogason, hugðist hafa milligöngu um það. 12. maí 2009 11:52
Segja söluna á BYR-hlutnum aldrei hafa átt sér stað Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynning vegna fréttar Stöðvar 2 frá því fyrr í kvöld um sölu bankans á 2,6% stofnfjárhlut í BYR. Þar segir að sala þessi hafi verið háð samþykki Skilanefndarinnar. Afstaða Skilanefndar hafi hinsvegar ekki legið fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbankans hafi tekið málið fyrir og salan hafi ekki hlotið samþykki nefndarinnar. 11. maí 2009 21:44
Listi yfir stofnfjáreigendur Byr hverfur Listi yfir stofnfjáreigendur Byrs var fjarlægður af heimasíðu Byrs í morgun en þar kom fram að Reykjavík Invest ætti 2,6 prósent hlut í bankanum þrátt fyrir tilkynningu skilanefndar Landsbankans í gær um að viðskiptin hefðu ekki átt sér stað. 12. maí 2009 12:35
FME skoði sölu Landsbankans á BYR-hlut Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kvöld að ef einhver misbrestur væri á sölu Landsbankans á 2,6% hlut í BYR hljóti það að vera eitthvað sem Fjármálaeftirlitið muni skoða. Fréttastofa sagði frá því fyrr í kvöld að bankinn hefði selt umræddan hlut til félags sem heitir Reykjavík Invest. Formaður skilanefndar Landabankans, Lárus Finnbogason, er endurskoðandi félagsins. Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið né hvernig hluturinn var fjármagnaður í samtali við fréttastofu. 11. maí 2009 19:10
Segja sölu Landsbankans á hlut í BYR spillingu Skilanefnd Landsbankans seldi 2,6% hlut í Byr til lítils fjárfestingafélags rúmri viku fyrir aðalfund. Endurskoðandi félagsins er formaður skilanefndarinnar. Salan lyktar af atkvæðasmölun og spillingu segja stofnfjáreigendur. 11. maí 2009 18:05