Ráðuneyti rannsaki ásakanir um einelti 16. júlí 2009 03:30 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið Þegar heilbrigðismál og tryggingamál heyrðu undir sama ráðherra og tiltekin eineltismál komu upp var ráðuneytið síðast til húsa á Laugavegi.Fréttablaðið/Rósa „
Ásökun starfsmanns um að forstöðumaður opinberrar stofnunar beiti sig einelti eða bregðist ekki við einelti annarra starfsmanna, á almennt séð að gefa ráðherra tilefni til að kanna með sjálfstæðum hætti hvort grundvöllur sé fyrir slíkri ásökun,“ segir í áliti umboðsmanns Alþingis. Að því er fram kemur í áliti Róberts Spanó, setts umboðsmanns Alþingis, fór heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið, sem þá var, ekki að lögum í tilvikum sem snertu meint eineltismál í undirstofnunum ráðuneytisins. Ekki verði fallist á að það viðhorf ráðuneytisins að hafa ekki bein afskipti af einstökum starfsmannamálum eða taka beina afstöðu til ágreinings í slíkum málum, sé alltaf í samræmi við lög. „Ráðuneyti beri að taka með beinum og skýrum hætti afstöðu til þess hvort skylda hvíli á því til að grípa til raunhæfra og virkra úrræða í þessu sambandi á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna. Það er því ennfremur niðurstaða mín að ekki sé fullnægjandi, eins og lýst er í bréfi ráðuneytisins til umboðsmanns Alþingis, að ráðuneytið láti við það sitja að taka á móti starfsmönnum sem vilja ræða samskiptamál á vinnustöðum og hlusta á sjónarmið þeirra. Ráðuneytið verður á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna, eftir atvikum að eigin frumkvæði, að gera viðhlítandi ráðstafanir til að upplýsa það hvort grundvöllur sé fyrir ásökunum starfsmanna gagnvart forstöðumönnum stofnana,“ segir umboðsmaður. Athugun umboðsmanns var gerð að hans eigin frumkvæði eftir að nokkur erindi höfðu borist honum á undanförnum árum vegna meintra eineltismála hjá opinberum stofnunum. Fram kemur að leiði rannsókn í ljós að fótur sé fyrir eineltismálum sé þeim ráðherra sem viðkomandi stofnun heyrir undir skylt að leita úrræða til að leysa vandann. Þau geti bæði verið almenn eða sértæk eftir aðstæðum. „Sem dæmi um sértæk úrræði getur ráðuneyti, ef brýn nauðsyn krefur, gefið forstöðumanni undirstofnunar á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda fyrirmæli varðandi einstök mál, það getur kallað tiltekið mál til sín, ef ekki er um að ræða ákvörðun sem lög áskilja að sé tekin hjá undirstofnun í fyrstu atrennu, og jafnvel sett annan mann í embætti forstöðumanns til að leysa úr því tiltekna máli ef þess er þörf vegna eðlis ágreinings,“ segir umboðsmaður Alþingis. gar@frettabladid.is
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira