Handbolti

Kiel tapaði fyrsta stiginu í Meistaradieldinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. Nordic Photos / Bongarts
Kiel og danska liðið Kolding gerðu í dag jafntefli í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta, 31-31.

Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel en Aron Pálmarsson gat ekki leikið með liðinu í dag vegna hnémeiðsla.

Kiel er í efsta sæti riðilsins með sjö stig en Kolding í því öðru með fimm. Kiel er svo gott sem komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar.

Þá tapaði norska liðið Fyllingen fyrir sænsku meisturunum í Alingsås á heimavelli, 28-26, en liðin leika í C-riðli. Bæði lið voru stigalaus fyrir leikinn en Andri Stefan leikur með Fyllingen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×