Viðskipti innlent

Landsbankinn lækkar vexti

Í framhaldi af lækkun stýrivaxta úr 18% í 17% hefur Landsbankinn ákveðið að lækka vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum til samræmis.

Ennfremur hefur bankinn ákveðið að lækka vexti á verðtryggðum inn- og útlánum. Vextir á verðtryggðum inn- og útlánum lækka um 1 prósentustig.

Vextir óverðtryggðra innlána lækka á bilinu 0,5 til 1,2 prósentustig.

Vextir óverðtryggðra útlána lækka um allt að 1 til 1,2 prósentustig og eru það námsmenn sem njóta mestrar lækkunar á yfirdráttarlánum sínum.

Í tilkynningu segir að vextir bankans muni halda áfram að taka breytingum í samræmi við aðstæður á markaði. Með almennri vaxtalækkun er Landsbankinn að styðja við markmið stjórnvalda og Seðlabanka um að koma á efnahagslegum stöðugleika sem fyrst og létta greiðslubyrði skuldara.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×