Afskrifa strax 75 milljarða kr. af kröfum á fjármálafyrirtæki 12. janúar 2009 16:42
Nú liggur ljóst fyrir að ríkissjóður mun afskrifa strax 75 milljarða kr. af þeim kröfum sem Seðlabankinn á á hendur fjármálafyrirtækja í landinu. Í tilkynningu frá fjármálráðuneytinu segir að á grundvelli heimildar í fjáraukalögum fyrir árið 2008 sem samþykkt var á Alþingi 22. desember sl. var í dag gert samkomulag um að Seðlabanki Íslands framselji ríkissjóði kröfur á fjármálafyrirtæki að fjárhæð 345 milljarðar króna. Gegn yfirtöku krafnanna greiðir ríkissjóður 270 milljarða króna með verðtryggðu skuldabréfi til 5 ára, með 2,5 prósent ársvöxtum. Eins og fram hefur komið í fréttum er fyrrgreindir 345 milljarðar kr., sú upphæð sem Seðlabankinn lánaði fjármálafyrirtækjum, að stærstum hluta gömlu bönkunum þremur, áður en bankakerfið hrundi s.l. haust. Veðin sem eru fyrir þessum lánum, þ.e. skuldabréf í gömlu bönkunum þremur eru talin nær verðlaus meðal erlendra kröfuhafa bankanna. Á uppboðum á síðasta ári hjá þeim félögum/sjóðum sem gáfu út skuldatryggingar á sambærileg bréf fyrir hrun bankanna var talið að mest fengist fyrir bréf í Kaupþingi eða 6,6% af nafnverði. Í Glitni var þetta hlutfall talið vera rúm 3% og hvað Landsbankann varðar aðeins 1,25%.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira