Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. júlí 2014 11:15 Vísir/AFP
Flugfélagið easyJet mun tvöfalda umsvif sín í flugi til og frá Íslandi næsta vetur. Þetta kom fram á blaðamannafundi félagsins sem fór fram í Upplýsingamiðstöð ferðamanna við Ingólfstorg nú fyrir skömmu. Með aukningunni verður easyJet næstumsvifamesta flugfélag á Íslandi á veturna. Belfast, Genf og Gatwick-flugvöllur í Lundúnum voru einnig kynntir sem nýir áfangstaðir flugfélagsins og alls verða áfangastaðir easyJet því átta. Flugfélagið telur sig geta boðið ferðina frá 6000 krónum fyrir aðra leiðina með sköttum. EasyJet áætlar að með þessum auknu umsvifum muni ferðamennirnir sem félagið flytur til landsins skilja eftir sig um 40 milljarða króna í gjaldeyristekjur. „Ákvörðun easyJet gæti því mögulega haft áhrif á spár um hagvöxt á næsta ári,“ segir í tilkynningu frá félaginu sem gerir ráð fyrir að flytja um 400 þúsund ferðamenn til landsins. Einnig gerir það ráð fyrir að um 89% viðskiptavina easyJet verði erlendir á næsta ári og flestir þeirra verði með rúm fjárráð – „enda sé Ísland ekki ódýr áfangastaður.“ Flestir þeirra munu ferðast hingað að vetri til. Ali Gayward, framkvæmdastjóri easyJet í Bretlandi, kynnti áætlanir flugfélagsins á fundinum. Einnig tóku til máls Stuart Gill, sendiherra Bretlands og Grímur Sæmundsen, formaður SAF. Aðrir viðstaddir fundinn voru forstjóri og aðstoðarforstjóri Isavia, ásamt forsvarsmönnum Höfuðborgarstofu og Íslandsstofu.
Mest lesið Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Sjá meira