Eignir BG Holding hugsanlega kyrrsettar 21. febrúar 2009 21:00
Bresk stjórnvöld gætu kyrrsett eignir BG holding, dótturfélag Baugs í Bretlandi, fái Landsbankinn eignarráð yfir þeim en bankinn er enn undir hryðjuverkalögum þar í landi. Komi þetta til mun eignum verða ráðstafað upp í skuldir bankans í Bretlandi segir formaður skilanefndar Landsbankans. Fréttastofa leitaði til fjölda lögfræðinga vegna málsins en enginn treysti sér til að koma í viðtal vegna málsins. Allir sögðu þeir þó að málið væri lögfræðilega flókið og jafnvel enn flóknara reikningsdæmi. Breska hryðjuverkalöggjöfin kveður á um að breskum yfirvöldum er heimilt að kyrrsetja eignir bankans auk þess sem fjármagnsflutningar eru bannaðir frá Bretlandi. Eftir að skilanefnd Landsbankans gekk að veðum BG Holding og sótti um heimild fyrir greiðslustöðvun dótturfélagsins í byrjun febrúar er ekki hægt að ráðstafa eignunum án samráðs við bankann. Landsbankinn er þó ekki orðinn beinn eigandi bréfanna en að óbreyttu mun bankinn taka yfir hlutafjáreign Baugs í breskum verslunum þegar greiðslustöðvuninni lýkur. Þær verslanir sem um ræðir eru t.a.m. Hamleys, Iceland, House of Frazer og Goldsmiths. Þeir lögfræðingar sem fréttastofa ræddi við voru sammála um að með aðgerðum skilanefndarinnar myndu eignir BG holding í Bretlandi falla undir hryðjuverkalöggjöfina. Skilanefndin hefur gefið það út að ekki sé stefnt að sölu þessara hluta í nánustu framtíð en komi til þess þá eru fjármagnsflutningar til Íslands bannaðir samkvæmt löggjöfinni. Lárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbanka Íslands hf., telur enga hættu á að bresk yfirvöld kyrrsetji eignir BG holding.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira