Innlent

Kveikt í borðum í miðbænum

Erill var hjá lögreglu.
Erill var hjá lögreglu.
Fimm gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, tveir voru teknir grunaðir um fíkniefnaakstur. Hinir þrír voru teknir fyrir ölvun og óspektir. Erilsamt var þó hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt þar sem töluverður mannfjöldi var í miðborginni. Kveikt var í borðum á torgi sem er milli Laugavegar og Hverfisgötu. Slökkvilið var kallað til og slökkti það eldinn.

Á Dalvík hefur hátíðin Fiskidagurinn mikli staðið yfir um helgina. Tvö smávægileg fíkniefnamál komu upp í bænum í nótt og voru tveir gripnir ölvaðir undir stýri. Að sögn lögreglu var ölvun í bænum ekki mikil miðað við fjölda gesta.

Á Akureyri fór nóttin vel fram, einn gisti þó fangageymslur en sá var sendur frá Dalvík þar sem hann var gripinn með fíkniefni. Einn var tekinn grunaður um ölvun við akstur.

Í Reykjanesbæ var rólegt um að litast í nótt. Einn var tekinn fyrir fíkniefnaakstur en að öðru leyti fór nóttin vel fram.

Á Selfossi fer fram hátíðin Sumar á Selfossi. Að sögn lögreglu var rólegt í bænum en einn var tekinn fyrir ölvun við akstur.

Í öðrum umdæmum lögreglu var nóttin með rólegra móti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×