Sigrún ráðin framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar Magnús Már Guðmundsson skrifar 13. ágúst 2009 10:52 Sigrún Jónsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar um næstu mánaðarmót. Mynd/Samfylkingin
Stjórn Samfylkingarinnar hefur ráðið Sigrúnu Jónsdóttur stjórnmálafræðing sem framkvæmdastjóra flokksins frá með septembermánuði næstkomandi. Hún gegndi tímabundið störfum framkvæmdastjóra eftir að Skúli Helgason lét af störfum í vor. Starfið var auglýst í júní og voru umsækjendur tæplega þrjátíu, mikið af reynslumiklu og velmenntuðu fólki, að fram kemur á vef flokksins. Þar segir að Sigrún eigi að baki farsælan feril bæði í flokksstarfi og í störfum meðal annars fyrir Háskóla Íslands og menntamálaráðuneytið. Hún gegndi tímabundið starfi framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar í kosningunum á síðast liðnu vori og í alþingiskosningunum árið 2007 var hún kosningastjóri Samfylkingarinnar á landsvísu. Árið 2003 var hún kosningastjóri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Sigrún var bæjarfulltrúi í Kópavogi árunum 1998 til 2006. Sigrún er með BA próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og kennsluréttindi frá sama skóla. Frá því síðla árs 2005 hefur hún starfað hjá Háskóla Íslands, fyrst sem verkefnisstjóri í félagsvísindadeild en undanfarið sem deildarstjóri félags- og mannvísindadeildar. Sigrún starfaði sem sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu á árunum 1993 til 2005. Hún var framkvæmdastjóri þingflokks Kvennalistans 1987 til 1991 og vann um tíma við blaðamennsku.Eysteinn ráðinn upplýsingafulltrúi þingflokksins Eysteinn Eyjólfsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi þingflokks Samfylkingarinnar og hefur þegar hafið störf. Eysteinn var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í vor. Hann hefur einnig verið formaður Samfylkingarfélagins í Reykjanesbæ. Eysteinn hefur lagt stund á nám í stjórnmálafræði og sagnfræði við HÍ. Hann kenndi við Heiðarskóla í Reykjanesbæ og hefur starfað við verkefnastjórn síðustu árin, meðal annars fyrir Samfylkinguna.
Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Fleiri fréttir Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Sjá meira