Viðskipti innlent

Byr tekur yfir viðbótalífeyrissparnað

Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir því að Byr sparisjóður verði vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnaðar fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is. Færist sparnaðurinn sjálfkrafa til Byrs, þeim að kostnaðarlausu, hálfum mánuði eftir að þeim berst kynningarbréf þess efnis.

Samkvæmt samningi við slitastjórn SPRON og nb.is mun Byr annast ávöxtun á verðtryggðum sparnaði ásamt þjónustu við viðskiptavini en Íslensk verðbréf (ÍV) munu sjá um stýringu á verðbréfatengdum eignum. Slitastjórnin gekk til samninga við Byr og ÍV að undangengnu útboði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×