Viðskipti innlent

Fundu ekkert athugavert hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum

Fjármálaeftirlitið hefur lokið skoðun á Frjálsa lífeyrissjóðnum fyrir árið 2008. Skoðunin leiddi ekkert aðfinnsluvert í ljós í fjárfestingum sjóðsins.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Nýja Kaupþing hefur sent frá sér vegna frétta af því að Fjármálaeftirlitið hafi vísað málum fimm lífeyrissjóða í rekstri og eignastýringu Landsbankans til sérstaks saksóknara, en Frjálsi lífeyrissjóðurinn er í rekstri Nýja Kaupþings.

.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×