Alexander afgreiddi Lemgo Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. desember 2009 21:17 Alexander var frábær í kvöld.
Alexander Petersson átti sannkallaðan stórleik fyrir Flensburg í kvöld er liðið lagði Lemgo, 23-24, og endurheimti þriðja sæti deildarinnar. Lemgo í áttunda sætið eftir tapið á heimavelli. Lemgo var nánast með unninn leik í höndunum þegar Alexander fékk loksins tækifæri hjá Lemgo. Þá var staðan 21-15 fyrir Lemgo en íslenski landsliðsmaðurinn var fljótur að kveikja neistann hjá sínum mönnum. Hann skoraði tvö mörk í röð og kom sínum mönnum í gang. Þriðja markið hjá Alexander kom er hann jafnaði 21-21 og hann skoraði sitt fjórða mark er Flensburg náði tveggja marka forskoti, 21-23. Átta mörk í röð og Alexander með helminginn af mörkunum. Lemgo fékk tækifæri til þess að jafna í lokasókninni en þá sýndi Alexander snilld sína í vörninni er hann fiskaði ruðning á sóknarmann Lemgo. Lygileg frammistaða hjá íslenska landsliðsmanninum sem fær ótrúlega lítið að spila hjá Flensburg. Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk fyrir Lemgo. Logi Geirsson var í byrjunarliði Lemgo sem hornamaður. Hann fékk ekki eitt færi áður en hann var tekinn af velli og til að bæta gráu ofan á svart var honum ekki hleypt aftur inn á völlinn þó svo sóknarmenn liðsins væru með allt niður um sig. Rúnar Kárason skoraði þrjú mörk fyrir Fuchse Berlin sem tapaði stórt gegn Dormagen, 32-23. Berlin í 9. sæti deildarinnar. Gylfi Gylfason skoraði tvö mörk fyrir Minden og Ingimundur Ingimundarson eitt er liðið tapaði gegn Göppingen, 21-23. Minden er í næstneðsta sæti deildarinnar.
Mest lesið Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Íslenski boltinn Tveimur refsað og Bergrós líklegast á leið á heimsleikana Sport Arnór seldur til Grikklands Fótbolti Elísa fór kílómetrana 80 á undir níu klukkustundum Sport Jürgen Klopp segir að þetta sé besta bandaríska landsliðið í sögunni Fótbolti Spurður út í Adam Ægi: „Getur vel verið að við spjöllum við hann“ Íslenski boltinn Umferðin klárast upp á Skaga og Stúkan gerir allt saman upp Sport Ný lið bætast við Körfubolti Forseti FIFA búinn að vera í loftinu í 66 klukkutíma á þessu HM Fótbolti Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira