Ríkissjóður mun skulda 413 milljarða kr. umfram eignir 28. janúar 2009 12:34
Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir því að í árslok þessa ár muni skuldir ríkissjóðs nema 413 milljörðum kr. umfram eignir. Hvað eignabreytingar varðar vegur þyngst að sjóðurinn mun tapa 220 milljörðum kr. vegna veðlána þeirra sem sjóðurinn létti nýlega af Seðlabankanum. Í fréttatilkynningu um málið frá fjármálaráðneytinu segir að heildarskuldir ríkissjóðs á árinu muni aukast um ríflega 400 milljarða kr.. Auk þess mun ríkissjóður ábyrgjast skuldir vegna Icesave/Edge, lán AGS o. fl. til Seðlabankans upp á tæplega 1.300 milljarða kr.. Gert er ráð fyrir að tap ríkissjóðs vegna Icesave/Edge muni nema 150 milljörðum kr. nettó, það er þegar búið er að selja eignir gömlu bankanna upp í þessar skuldir. Þetta er nokkuð bjartsýn tala, til dæmis gerir AGS ráð fyrir 250 milljarða kr. tapi vegna Icesave/Edge. Hvað varðar töpuð veðlán kom fram nú eftir áramótin að ríkissjóður yfirtók óvarin tryggingarbréf veð- og daglán Seðlabankans til gömlu bankanna og greiddi fyrir með skuldabréfi upp á 270 milljarða kr. Sjálf upphæðin sem yfirtekin var nam hinsvegar 345 milljörðum kr. og því voru 75 milljarðar kr. afskrifaðir strax sem tapað fé. Nú gerir ríkissjóður ráð fyrir að innheimta 50-80 milljarða kr. af þessu 270 milljarða kr. skuldabréfi og fær þá út tap upp á 220 milljarða kr. fyrir ríkissjóð. Nær væri að áætla tapið tæplega 300 milljarða kr. miðað við framangreindar forsendur.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira