Viðskipti innlent

Gera ráð fyrir 0,5% stýrivaxtalækkun

Greining Íslandsbanka telur að niðurstaða peningastefnunefndar verði sú að lækka vexti um 0,5 prósentustig og vextir verði í kjölfarið 17,5%, en stýrivaxtaákvörðunardagur verður næsta fimmtudag. Þessa niðurstaða var birt í nýrri gengis- og stýrivaxtaspá frá 11. mars síðastliðnum.

Eins og þar segir telur Íslandsbanki að forsendur hafi skapast fyrir lækkun stýrivaxta enda sé fátt sem haldi verðbólgunni uppi um þessar mundir þegar stöðugleiki hafi náðst á gjaldeyrismarkaði, slaki er á vinnumarkaði og húsnæðisverð er byrjað að lækka. Þá hafi hrávöruverð verið á niðurleið, sem og annar erlendur verðbólguþrýstingur. Greining Íslandsbanka segir að málflutningur Mark Flanagan yfirmanns sendinefndar AGS skjóti enn frekari stoðum undir þá spá að vextir verði lækkaðir á næsta vaxtaákvörðunarfundi seinna í vikunni og hugsanlegt sé að þeir verði þá jafnvel lækkaðir meira en gert var ráð fyrir í spánni.

Á föstudaginn síðastliðinn sagði Flanagan á blaðamannafundi að skilyrði hefðu nú skapast fyrir vaxtalækkun enda hafi verðbólgan sem í upphafi árs mældist 18,6% nú farið niður í 17,6% og stefnir enn lægra á næstu mánuðum og þá hafi gengi krónunnar styrkst umtalsvert. Með stöðugleika á gjaldeyrismarkaði, sterkari krónu og lækkun verðbólgunnar eru forsendur fyrir því að Seðlabankinn lækki stýrivexti sína hratt og verði komnir niður í 11,5% í lok þessa árs og 5,5% í lok næsta árs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×