Erlend staða þjóðarbúsins neikvæð um 3.700 milljarða 3. mars 2009 12:26
Hrein erlend staða þjóðarbúsins var neikvæð um 3.675 milljarðar kr. í lok árs í fyrra og hafði þá versnað um 2.309 milljarða kr. yfir árið. Hreinar skuldir námu 240% af áætlaðri landsframleiðslu í lok árs 2008 samanborið við 106% í lok árs 2007. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þetta sé afar slæm erlend skuldastaða í sögulegu og alþjóðlegu ljósi en litast af uppgjöri gömlu bankanna sem er enn inni í þessum tölum. Tölurnar eru litaðar af bankahruninu og þeirri óvissu sem það hefur skapað. Að frátalinni stöðu þessara banka, sem í raun eru í eigu erlendra kröfuhafa, er erlend skuldastaða þjóðarbúsins mun betri en ofangreindar tölur benda til. Erlendar skuldir þjóðarbúsins námu 13.233 milljörðum kr. í lok árs í fyrra. Meirihluti þessara erlendu skulda eru gömlu bankanna. Þannig voru erlendar skuldir innlánsstofnanna 10.598 milljarðar kr. í lok árs í fyrra eða ríflega 81% skuldanna. Erlendar eignir innlásstofnanna voru á móti 5.673 milljarðar kr. og mun stór hluti þeirra verða seldur á næstunni upp í kröfur erlendra lánadrottna. Hrein erlend staða innlánsstofnana var neikvæð um 4.925 milljarða kr. í lok síðastliðins árs og skýrir það alla hreina skuldastöðu þjóðarbúsins og gott betur. Hrein erlend skuldastaða innlánsstofnana ber það með sér að erlendir kröfuhafar gömlu bankanna munu ekki fá nema lítinn hluta af kröfum sínum greiddar. Eignir gömlu bankanna eru ekki taldar vera meiri virði en svo.Seðlabankinn skuldaði erlendis 371 milljarða kr. í lok síðastliðins árs. Á móti þessu voru eignir bankans, þ.e.a.s. gjaldeyrisforðinn, 429 milljarðar kr. og hrein erlend staða hans því jákvæð um 58 milljarða kr. Hið opinbera skuldaði hins vegar 701 milljarða kr. erlendis og á móti því voru engar erlendar eignir þannig að hrein skuldastaða hins opinbera var í lok árs sama fjárhæð.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira