Handbolti

Vignir með tvö mörk í öruggum sigri Lemgo

Ómar Þorgeirsson skrifar
Vignir Svavarsson í leik með íslenska landsliðinu.
Vignir Svavarsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Stefán

Íslendingaliðið Lemgo hóf keppni í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld með 38-30 sigri gegn Magdeburg en staðan var 21-16 Lemgo í vil í hálfleik.

Vignir Svavarsson skoraði tvö mörk fyrir Lemgo en Logi Geirsson gat ekki leikið með liðinu vegna meiðsla.

Lemgo rak þjálfarann Markus Baur í gær eftir hörmulegt gengi liðsins í leikjum um laust sæti í Meistaradeildinni en Volker Mudrow, sem var áður þjálfari liðsins, var í dag ráðinn í hans stað og stýrði liðinu í leiknum í kvöld.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×