Sakfelldur fyrir slysaskot í veiðifélagann Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 7. ágúst 2009 12:59 Byssa af þeirri gerð sem maðurinn átti, Benelli Centro.
Maður var á miðvikudag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa af gáleysi valdið því að skot hljóp úr byssu og í framhandlegg veiðifélaga hans. Þá var Benelli haglabyssa í eigu mannsins gerð upptæk. Héraðsdómur Norðurlands eystra kvað upp dóminn. Málsatvik voru þau að maðurinn hafði lagt haglabyssuna frá sér hlaðna í farangursgeymslu bifreiðar, þar sem ýmislegt annað dót lá, eftir andaveiðar með félaga sínum. Þvínæst kastaði hann poka með gerviöndum inn í farangursgyemsluna með þeim afleiðingum að skot hljóp úr byssunni, í gegnum hurðarfals og í veiðifélagann sem stóð fyrir utan að ganga frá. Hlaut veiðifélaginn gapandi sár á framhandlegg og þurfti að gangast undir aðgerð þar sem fjarlægð voru högl og járnstykki. Ákærði taldi sig hafa haft öryggið á byssunni og sagði skotið hafa hlaupið af á óútskýrðan hátt. Hann fór fram á sýknu í málinu, og mótmælti einnig upptökukröfu byssunnar þar eð af honum stafi ekki hætta og vopnið sé verðmætt. Við ákvörðun refsingarinnar var horft til þess að ákærði hafði engan sakaferil, hann hafi reynt að bæta veiðifélaganum líkamstjónið eftir bestu getu og hann hafi verið samvinnufús við rannsókn málsins. Auk þess kvað maðurinn málið hafa fengið mikið á sig og honum hafi ekki orðið svefnsamt fyrst eftir slysið. Þá sagðist hann nær alveg hafa lagt meðferð skotvopna á hilluna að sinni, en áður verið mikill skotvopnamaður.
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Fleiri fréttir Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Sjá meira