Metjöfnun hjá Kiel Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. febrúar 2009 22:16 Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. Nordic Photos / Bongarts
Kiel vann í kvöld sinn 20. sigur í röð í þýsku úrvalsdeildinni en það er metjöfnun. Kiel vann öruggan sigur á Minden, 39-30. Kiel gerði óvænt jafntefli við Dormagen í fyrstu umferð deildarinnar í haust en hefur síðan þá ekki stigið feilspor. Með sigrinum í kvöld hefur Kiel jafnað met Lemgo sem vann 20 leiki í röð árið 2002. Nikola Karabatic var ekki í leikmannahópi Kiel í kvöld en Alfreð Gíslason, þjálfari liðsins, sagði eftir leik að hann hafi verið tæpur vegna meiðsla. Liðið mætir Ciudad Real í Meistaradeild Evrópu á sunnudaginn og er vonast til þess að Karabatic verði með þá. Þá vann Gummersbach fimm marka sigur á Balingen á útivelli, 31-26. Róbert Gunnarsson skoraði fimm mörk fyrir Gummersbach í leiknum. Kiel er í efsta sæti deildarinnar með 41 stig og tíu stiga forystu á Lemgo sem er í öðru sæti og á leik til góða. Gummersbach er í sjöunda sætinu með 26 stig, Minden í tólfta sæti með fjórtán og Balingen í því sextánda með níu. Þá fór einn leikur fram í norðurriðli B-deildarinnar. Hannover-Burgdorf vann stórsigur á Aurich, 38-17. Heiðmar Felixsson og Hannes Jón Jónsson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Burgdorf.Liðið er í þriðja sæti deildarinnar með 31 stig, sjö stigum á eftir toppliði Lübbecke sem Þórir Ólafsson leikur með.
Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Fótbolti Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira