Handbolti

Átta mörk Þóris dugðu ekki til sigurs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir Ólafsson.
Þórir Ólafsson. Mynd/Stefán

Þórir Ólafsson skoraði átta mörk fyrir Lübbecke sem gerði jafntefli við Minden, 23-23, á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Heiðmar Felixsson komst ekki á blað í liði Lübbecke. Gylfi Gylfason skoraði fjögur mörk fyrir Minden en Ingimundur Ingimundarson ekkert.

Lübbecke er í níunda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fjóra leiki. Hannover er í fjórtánda sæti með tvö stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×