Íslensk fyrirtæki spyrjast fyrir um krónubréfakaup 4. maí 2009 11:03
Nokkrar fyrirspurnir frá íslenskum fyrirtækjum og aðilum hafa borist til Seðlabankans um kaup á krónu/ríkisbréfum í eigu erlendra aðila. Sem kunnugt er af fréttum hér á Fréttastofu vinnur Seðlabankinn nú að því að koma af stað ferli þar sem íslenskum fyrirtækjum, sem hafa tekjur í erlendum gjaldmiðlum, yrði gert kleyft að gefa út skuldabréf til langs tíma í erlendri mynt sem síðan mætti nota til að kaupa krónu/ríkisbréfin af þeim erlendu fjárfestum sem brunnið hafa inni með þessar eignir sínar vegna gjaldeyrishaftanna. Er vinna Seðlabankans, eftir því sem Fréttastofan kemst næst, það langt komin að von er á auglýsingu frá bankanum um málið í náinni framtíð, jafnvel næstu dögum. Talið er að hægt sé að létta töluverðum þrýstingi af gengi krónunnar með þessum hætti. Eins og Fréttastofan hefur greint frá eru forráðamenn Norðurál (Century Aluminium) áhugasamir um málið enda er áætlað að innlendur kostnaður þeirra við byggingu álversins í Straumsvík nemi eitthvað yfir 60 milljörðum kr. Norðurál getur hugsað sér að gefa út skuldabréf í dollurum til langs tíma og nota þau til að útvega sér krónur frá hinum erlendu aðilum til að standa straum af innlendum kostnaði sínum. Ekki yrði greitt af þessum skuldabréfum fyrr en álverið fer að skila inn tekjum. Önnur íslensk fyrirtæki sem gætu komið að þessu borði eru t.d. Össur og Marel en einnig hefur nafn Landsvirkjunar verið nefnt í þessu sambandi. Þá er hugsanlegt að einhverjar útgerðir/sjávarútvegsfyrirtæki hefðu einnig áhuga á málinu.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“ Atvinnulíf Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Sjá meira