Hannaði gistiheimili í gamalli rafstöð Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 10. ágúst 2009 17:55 Svona sér Sólveig fyrir sér að gestir gistiheimilisins geti kafað um jarðhæð gömlu rafstöðvarinnar, eftir að hún hefur verið fyllt af vatni. Mynd/Solveigragna.com „
Ég nota gamla húsið, held grindinni og klæðningunni og bæti inn hosteli í litlum einingum sem eiga að líkja eftir vélunum," segir Sólveig Ragna Guðmundsdóttir, nýútskrifaður arkitekt úr Arkitektaskólanum í Árósum. Lokaverkefni Sólveigar var með forvitnilegra móti, en hún vann með gömlu vararafstöðina í Elliðaárdalnum. Hún setti fram þá hugmynd að opna gistiheimili, eða hostel, í stöðinni. Sólveig fékk innblástur úr gamla vélarbúnaðinum sem prýðir rafstöðina og vill að hann fái að halda sér. Þannig gengur hún gegn hefðbundnum nútímaarkitektúr þar sem hið gamla er oft rifið út. Nýju einingarnar sem mynda herbergi, móttöku, mötuneyti og fleira eiga svo að líkja eftir hinu vélræna og hafa fengið vélarnöfn. Herbergin eru til dæmis svefnvélar, svokallaðar Shackines - blanda af ensku orðunum shack og machine. Einn hluti hugmyndar Sólveigar er svo að opna vatnsleiðslur gömlu rafstöðvarinnar og hleypa vatni á neðstu hæð hússins. „Hluti af pælingunni er að jarðhæðin verði fyllt vatni svo hægt sé að skoða vélarnar frá nýju sjónarhorni, vélarnar eru gerðar ónothæfar þegar náttúran er búin að taka yfir," segir Sólveig, sem vill að köfunargræjur verði leigðar gestum gistiheimilisins svo þeir geti kafað um jarðhæð hússins. Hún gerir ráð fyrir að álar og aðrir fiskar sem leynast í Elliðaánum muni jafnvel synda um jarðhæð hússins, svo kafararnir geti upplifað hið náttúrulega og vélræna á súrrealískan hátt.Hægt er að lesa nánar um hugmyndina á heimasíðu Sólveigar, Solveigragna.com.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira