Gaukur mátti kalla Ómar rasista 29. janúar 2009 16:54 Gaukur Úlfarsson.
Gaukur Úlfarsson var í dag sýknaður í Hæstarétti af meiðyrðakæru Ómars R. Valdimarssonar. Hæstiréttur snýr því við dómi héraðsdóms sem fann Gauk sekann fyrir ummæli sem hann lét falla á netinu. Málið á rætur sínar að rekja til skrifa Gauks á bloggsíðu sinni þar sem hann fjallaði um Ómar undir fyrirsögninni „Aðal rasisti bloggheima". Ómar hafði samband við Gauk vegna þessa og bað hann um að fjarlægja færsluna. Þegar Gaukur varð ekki við því ákvað Ómar að höfða mál. Hann fór fram á tvær milljónir í skaða- og miskabætur auk þess sem hann krafðist þess að Gaukur greiddi honum átta hundruð þúsund krónur fyrir birtingu á dómsúrskurði í þremur dagblöðum. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var Gaukur dæmdur til þess að greiða Ómari 300 þúsund krónur í miskabætur auk hálfrar milljónar í málskostnað. Hæstiréttur taldi, að skoða mætti skrif Gauks sem lið í almennri umræðu um stjórnmál í aðdraganda alþingiskosninga, en þau birtust í miðli sem opinn var hverjum sem vildi kynna sér þau. Ómar hafi tekið þátt í þeirri umræðu á sama vettvangi. Dómurinn var á því að ummæli Gauks hafi verið ályktanir sem hann hafi talið sig geta reist á orðum Ómars og yrði því ekki slegið föstu að þær hafi verið með öllu staðlausar, eins og það er orðað. Hæstiréttur snéri því við dómi héraðsdóms og ákvað að ummælin skyldu ekki ómerkt. Af því leiðir að dómurinn tók heldur ekki aðrar kröfur Ómars til greina og sýknaði Gauk.
Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Sjá meira