Ronaldo er huggulegur - en Gerrard er betri 25. janúar 2009 09:00 NordicPhotos/GettyImages
Hollenski þjálfarinn Guus Hiddink segir að Steven Gerrard hefði mun frekar átt skilið að vera kjörinn knattspyrnumaður ársins en Cristiano Ronaldo. Hiddink er einn virtasti þjálfari Evrópu og er sem stendur landsliðsþjálfari Rússa. Honum þykir glansinn í kring um Ronaldo vera allt of mikill og er sjálfur miklu hrifnari af stríðsmanninum Gerrard hjá Liverpool eftir því sem fram kemur í Daily Mail. "Ronaldo er sannarlega huggulegur knattspyrnumaður, hann er í fínu formi og hárgreiðsla hans er alltaf í fínu lagi, en mér finnast þessi verðlaun snúast allt of mikið um sjarmann," sagði Hollendingurinn um Portúgalann. Steven Gerrard varð aðeins tíundi í kjörinu á knattspyrnumanni ársins - langt á eftir stjörnum eins og Ronaldo, Messi og liðsfélaga sínum Fernando Torres hjá Liverpool. "Gerrard er í miklu meira uppáhaldi hjá mér. Hann hefur yfir að ráða mikilli tækni og er skipulagður og ég dáist að viðhorfi hans og baráttuanda. Þetta hefur allt að gera með ástríðu hans til leiksins. Gerrard er maður sem stuðningsmennirnir tengja við - maður sem ber ást sína á félaginu utan á sér," sagði Hiddink og hélt áfram að dásama enska landsliðsmanninn. "Það er ekki til annar leikmaður í heiminum sem hefur alla þessa kosti. Hann er leikmaður sem höfðar miklu meira til mín en Ronaldo. Auðvitað er Ronaldo mikill skemmtikraftur, en hjá honum snýst þetta of mikið um glamúr og að setja á svið sýningu. Gerrard og Xavi og Messi eru ekki eins uppteknir af sjálfum sér. Þeir einblína á liðið," sagði Hiddink.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 24-23 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira