Saving Iceland gagnrýna fréttaflutning af mótmælum 8. ágúst 2009 12:05 Bifreið iðnaðarráðherra var grænleit eftir að mótmælendur höfðu lokið sér af.
Umhverfishreyfingin Saving Iceland stóð fyrir mótmælum við Iðnaðarráðuneytið í gær. Á sama tíma átti sér stað undirritun fjárfestingarsamnings ríkisstjórnarinnar og Norðuráls vegna álvers í Helguvík. Mótmælendur skvettu grænu skyri á ráðuneytið og bifreið Iðnaðarráðherra sem hafði verið lagt fyrir utan. Fimm voru handteknir vegna mótmælanna og kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu. Að sögn lögreglu var sparkað í höfuð eins lögreglumanns en Saving Iceland samtökin segja í yfirlýsingu sem þau sendu frá sér í morgun, engar sannanir liggja fyrir um ofbeldi gegn lögreglu. Þvert á móti hafi ofbeldið verið af hálfu lögreglu og þau hafi myndbönd máli sínu til stuðnings. Samtökin gagnrýna fjölmiðla vegna fréttaflutnings af mótmælunum. Þau segja fjölmiðla notast við þá tækni að leita að viðmælendum sem segi þá sögu sem fjölmiðlarnir vilji sjálfir heyra, og klippi svo eftir hentugleika.Þá segjast samtökin hafa myndband því til stuðnings að ofbeldið hafi verið af hálfu lögreglu, en ekki mótmælenda. Milli tuttugu og þrjátíu manns úr Saving Iceland hópnum mótmæltu handtöku félaga sinna fimm frá því fyrr um daginn, fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötu í nótt. Tveir voru handteknir í þeim mótmælum þar sem þeir fóru ekki að fyrirmælum lögreglu. Mótmælendurnir grýttu eggjum í lögregluna og börðu rúður við lögreglustöðina. Lögreglan hefur sleppt öllum úr haldi, bæði þeim sem handteknir voru í nótt og þeim sem handteknir voru fyrr í gærdag. Myndbandið sem Saving Iceland telur sanna sitt mál má sjá hér.
Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Samskiptum á einkamál.is lauk með 108 milljóna tapi Sóknarnefnd ræður úrslitum um örlög regnbogafánans Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Sjá meira