Innlent

Ljósanótt í Hafnarfirði og á Patró

Neyðarblysum var skotið á loft í Hafnarfirði um miðnættið og svifu til jarðar í fallhlífum. Kona sem varð vitni að þessu sá hvar fallhlífarnar lentu og fann þær. Þeim var komið í hendur Landhelgisgæslunnar, en þar á bæ kannast menn ekki við þessa gerð af neyðarblysum og verður málið kannað nánar í dag.

Þá kannaði lögreglan á Patreksfirði ljósagang í innanverðum firðinum, sem starfsfólk á sjúkrahúsinu sá í nótt. Lögregla varð einskis vísari en þegar hún var kominn í bæinn aftur, sáu lögreglumenn einhver ljós innst í firðinum og verður málið kannað nánar í birtingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×