Viðskipti innlent

Hústökumenn í jakkafötum

Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis.
Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis.
Samkvæmt fréttum hafa Hermann Jónasson og Jóhann Óli Guðmundsson ráðist í lögleysu inn í fjarskiptafyrirtækið Tal og borið þaðan út forstjóra félagsins.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Teymi. Þar segir að aðgerðirnar hafi þeir félagar reynt að réttlæta með vísan í úrskurð Fjármálaráðuneytisins. Sá úrskurður lúti hinsvegar ekki að lögmæti brottvikningar Hermanns úr starfi forstjóra eða ráðningar nýs forstjóra í kjölfarið heldur formreglum hlutafélagalaga. Þá segir í tilkynningunni að ráðuneytið sé sammála Teymi um að deilur sem þessar beri að útkljá fyrri dómstólum.

„Teymi hefur kappkostað að halda hinu öfluga starfsfólki Tals fyrir utan hluthafadeilurnar og harmar, að Hermann Jónasson og Jóhann Óli Guðmundsson skuli svífast einskis til að tryggja Hermanni starf hjá félaginu í óþökk meirihlutaeiganda,“ segir í tilkynningunni.

„Með því hafa þeir skapað óþolandi vinnuaðstæður fyrir heiðarlegt og duglegt starfsfólk Tals og brotið gróflega á Ragnhildi Ágústsdóttur, sem þeir hafa ítrekað reynt að hrekja úr starfi forstjóra Tals á undanförnum vikum, jafnvel þótt hún sem barnshafandi njóti lagaverndar gegn uppsögn.“

Teymi lítur svo á, að allar ákvarðanir sem Hermann Jónasson tekur sem sjálfskipaður forstjóri Tals séu ólögmætar þar til dómstóll hefur úrskurðað í málinu.

„Teymi er eigandi 51% hlutafjár í Tali og á kauprétt á hlutum Jóhanns Óla og Hermanns í september nk.,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Hermann aftur forstjóri Tals

Fjármálaráðuneytið úrskurðaði í gær að fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra bæri að afmá tilkynningu um breytingu á framkvæmdastjórn og prókúruhafa IP-fjarskipta ehf. (Tals) frá 12. janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×