Innlent

Koma á fund utanríkismálanefndar á mánudag

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson
Utanríkisráðherra og fjármálaráðherra koma á fund utanríkismálanefndar Alþingis á mánudag og fjalla um samskipti íslenskra stjórnvalda við stjórnvöld í nágrannalöndum Íslands í tengslum við Icesave.

Ekki hefur enn fundist lausn á Icesave deilunni sem tryggir meirihluta fyrir málinu á Alþingi. Fjárlaganefnd hefur fundað stíft síðustu vikur og reynt að ná lausn. Ljóst er að Alþingi mun setja einhverja fyrirvara við ríkisábyrgðina en óljóst er hversu langt er hægt að ganga án þess að það þýði að Alþingi sé í raun að fella samningana.

Þingfundur verður næstkomandi mánudag eftir drjúgt hlé. Dagskrá þingfundarins liggur ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×