Handbolti

Aron með þrjú í sigri Kiel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson í leik með íslenska landsliðinu.
Aron Pálmarsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/AP

Aron Pálmarsson og félagar í Kiel unnu í dag sjö marka sigur á Gummersbach, 36-29, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Aron skoraði þrjú mörk fyrir Kiel í leiknum, öll á síðustu tíu mínútum leiksins. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel.

Róbert Gunnarsson skoraði einnig þrjú mörk í leiknum en hann er fyrirliði Gummersbach.

Kiel hefur unnið alla fjóra leiki sína til þessa á tímabilinu og er í efsta sæti deildarinnar. Tvö önnur lið eru taplaus en hafa leikið þrjá leiki til þessa. Það eru Hamburg og Flensburg.

Gummersbach er í sjötta sæti deildarinnar með fimm stig eftir fjóra leiki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×