Verðum að passa skytturnar 15. febrúar 2009 08:00 Fannar Ólafsson, leikmaður KR. "
Það hjálpaði til að tapa á mánudaginn og það verður vonandi aukalegt spark í rassinn," sagði miðherjinn Fannar Ólafsson hjá KR við Vísi þegar hann var spurður út í úrslitaleikinn við Stjörnuna. KR og Stjarnan mætast í úrslitaleik Subwaybikarkeppni karla í Laugardalshöllinni klukkan 16.00 í dag. "Við erum miklu meira en tilbúnir í þennan leik og hefðum í raun verið til í að spila þennan leik strax eftir Grindavíkurleikinn. Við munum koma af miklum krafti í þetta og það mun sjást frá fyrstu mínútu frá okkur," sagði Fannar einbeittur á svip. KR-ingar eru fyrirfram álitnir sigurstranglegri í leiknum, enda hefur liðið aðeins tapað einum leik í öllum keppnum í vetur. En hvað þurfa KR-ingar að varast í úrslitaleiknum? "Við verðum að passa að skytturnar þeirra detti ekki í stuð fyrir utan. Það er þeirra leikur. Við verðum að gæta þess að missa þá Kjartan (Atla Kjartansson), Jovan (Zdravevski) og Justin (Shouse) ekki í stuð. Við verðum að klippa þá Jovan og Shouse sérstaklega út. Shouse er sérstaklega mjög hættulegur og hann hefur fengið aukið hlutverk í þessu liði og spilað mjög vel síðan Teitur tók við," sagði Fannar.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Fótbolti Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Sjá meira