Innlent

Vill ákæra forsprakka mótmælanna í Íran

Frá mótmælum í Teheran á dögunum.
Frá mótmælum í Teheran á dögunum.

Háttsettur yfirmaður í Íranska Byltingarverðinum, sérsveitum írönsku klerkastjórnarinnar, sagði í viðtali við írönsku ríkisstöðina í morgun að forsprakka mótmælanna síðustu vikurnar í Íran eigi að draga fyrir rétt og ákæra fyrir landráð.

Hershöfðinginn Yadollah Javani fer fyrir stjórnmálaarmi Byltingarvarðarins og segir hann augljóst að forsprakkar stjórnarandstöðunnar, þeir Mirhossein Moussavi og Mehdi Karrubi, ásamt fyrrverandi forsetanum Khatami, hafi áformað að hrinda af stað einskonar flauelsbyltingu í Íran.

Þar vísar hann í flauelsbyltinguna í Tékkóslóvakíu sem olli því að kommúnistastjórnin þar í landi hraktist frá völdum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×