Innlent

Féll milli báts og bryggju

Maður sem var að vinna við bát, sem liggur við bryggju skammt frá Kaffivagninum í Reykjavíkurhöfn, féll milli bátsins og bryggjunnar um klukkan þrjú í nótt.

Félagar mannsins kölluðu þegar eftir hjálp, en þegar lögregla og slökkviliðsmenn komu á vettvang, hafði maðurinn náðst upp, en þar sem hann var orðinn mjög kaldur, var hann fluttur á Slysadeild til aðhlynningar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×