Hundrað þúsund matarskammtar gefnir á Dalvík 10. ágúst 2009 02:00 Veðrið lék við hátíðargesti á Fiskideginum mikla á Dalvík þar sem boðið var upp á fjölda fiskrétta fólki að kostnaðarlausu.Mynd/Helgi Steinar „
Við höfum ekki tölu á hve margir mættu, það var svo gríðarlegt mannhaf. Aðsóknin hefur aldrei verið meiri,“ segir Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla á Dalvík. Dagskráin hófst síðastliðinn miðvikudag og segir Júlíus veðrið hafa leikið við hátíðargesti, en það var nítján stiga hiti og sól á Dalvík þegar blaðamaður náði tali af honum. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, skemmti sér og borði fjölbreytta fiskrétti sér að kostnaðarlausu, en Júlíus telur að rúmlega 100.000 matarskammtar hafi verið gefnir að þessu sinni. Matseðillinn breytist ár frá ári en ávallt er boðið upp á vinsæla rétti svo sem fiskborgara sem eru grillaðir á átta metra löngu grilli, lengsta grilli Íslands. „Fiskborgararnir slógu í gegn og við grilluðum um 13.600 borgara, sem er met. Svo kláraðist nánast úr stærsta súpupotti landsins sem tekur ellefu hundrað lítra, en Bjarni Óskarsson og félagar í Nings mölluðu þar austurlenska súpu,“ útskýrir Júlíus. Öllum réttum fylgdi brauð í boði Myllunnar og drykkir í boði Vífilfells eins og hver gat í sig látið. Aðspurður segir hann hátíðarhöldin hafa gengið vonum framar. „Það er ekki hægt að lýsa þessu, menn verða að upplifa þetta sjálfir. Það eru allir saddir og sælir eftir þetta og þakklætið er gríðarlegt hjá fólkinu sem kom.“ - ag
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira