Dæmd til að láta syni sína af hendi Helga Arnardóttir skrifar 10. ágúst 2009 15:05
Íslensk tveggja barna móðir er dæmd til að afhenda fyrrverandi eiginmanni sínum í Bandaríkjunum syni sína tvo samkvæmt nýlegum dómi Hæstaréttar. Konan er hvorki með fjármagn til upphalds né landvistar-og atvinnuleyfi þar í landi. Allls staðar segist hún koma að lokuðum dyrum í íslensku stjórnkerfi. Borghildur Guðmundssdóttir flutti hingað til lands í janúar í fyrra með syni sína tvo sem hún á með bandarískum manni. Eiginmaður hennar fyrrverandi fór í mál við hana og krafðist þess með aðfarabeiðni að hún myndi afhenda honum synina. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í júlí síðastliðnum segir að Borghildur hafi flutt drengina tvo til Íslands frá Bandaríkjunum og haldið þeim hér á landi með ólögmætum hætti samkvæmt ákvæðum Haag samningsins. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms. Borghildur segist hvorki vera með atvinnu-né landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Hún hafi í engin hús að venda þar í landi. Hún starfi í Reykjanesbæ við heimaþjónustu og hafi litla sem enga fjármuni til framfærslu flytjist hún út. Ennfremur blasir við henni forsjármál í Bandaríkjunum en Borghildur segist ekki hafa neina möguleika á lögfræðingi, þar sem hún hafi ekki peninga til. Drengirnir tveir sem eru 10 og fimm ára séu hér í skóla og leikskóla og uni sér vel. Hún segist allsstaðar hafa komið að lokuðum dyrum í íslensku stjórnkerfi og lítið sé hægt að gera fyrir hana. Stofnaður hefur verið hópur á Facebook sem ber yfirskriftina Hjálpum Boggu að halda börnum sínum þar sem gefið er upp reikningsnúmer fyrir þá sem vilja styrkja Borghildi. Nánar verður rætt við Borghildi í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi Sjá meira