Birgir vildi vita hvort samskiptin við norrænu ríkin hefðu verið óljós Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. ágúst 2009 15:31 Birgir Ármannsson spurði forsætisráðherra út í samskipti vegna norrænu lánanna.
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði forsætisráðherra að því á Alþingi í dag hvort það gæti verið að eitthvað óljóst hafi verið í því á hvaða forsendum norrænu ríkin veittu Íslandi lán sem beðið hefur verið eftir um allnokkurt skeið. Vísaði Birgir í skýrslu sænsku ríkisstjórnarinnar til þingsins þar í landi þar sem stendur að norrænu lánveitendurnir hafi gert það að skilyrði að Ísland næði samkomulagi við Bretland og Holland um lánveitingar vegna innistæðutrygginga. Nefnt væri til skýringa að norrænir lánveitendur vildu útiloka að lánin rynnu til Bretlands og Hollands. Sagði Birgir að þarna hefði greinilega verið misskilningur á ferðinni. Hann velti því fyrir sér hvort um væri að ræða útbreiddan misskilning. Jóhanna Sigurðardóttir sagðist ekki geta fallist á það að samningar um lánin hefðu verið gerðir á einhverjum óljósum forsendum. Lánin væru ekki tengd Icesave samningum að neinu leyti en þau væru liður í þeirri áætlun sem unnin er með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn frestaði í byrjun mánaðar endurskoðun á efnahagsáætlun Íslendinga á þeirri forsendu að norrænu lánin hefðu ekki borist ennþá.
Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Sóknarnefnd ræður úrslitum um örlög regnbogafánans Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Sjá meira