Viðskipti innlent

Landsframleiðslan jókst um 0,3% í fyrra

Landsframleiðslan á árinu 2008 varð 1.465 milljarðar króna og jókst að raungildi um 0,3% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,5% vaxtar á árinu 2007.

Þetta kemur fram í hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar, þar sem birtar eru áætlanir Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2008. Heftið er birt á vefsíðu Hagstofunnar.

Vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má öðru fremur rekja til útflutnings, sem jókst um 7%, og skýrist sú aukning að stórum hluta af mikilli aukningu á útflutningi afurða stóriðju. Á sama tíma dróst innflutningur saman um 18%. Þjóðarútgjöld drógust saman um 9,3%.

Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,9% að raungildi frá 3. ársfjórðungi 2008 til 4. ársfjórðungs 2008. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 14% þar sem einkaneysla dróst saman um 15% og fjárfesting um tæplega 14%.

Samneysla óx hins vegar um 2,4% frá 3. ársfjórðungi 2008 til 4. ársfjórðungs. Þá er talið að útflutningur hafi vaxið um 1,5% en innflutningur hafi dregist saman um tæplega 33%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxtinn milli ársfjórðunga, ekki ára.

 












Fleiri fréttir

Sjá meira


×