Ólafur: Það yrði fullkominn endir að vinna Meistaradeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2009 13:00 Ólafur Stefánsson skoraði 6 mörk í fyrri leiknum. Mynd/GettyImages
Ólafur Stefánsson spilar í dag sinn síðasta leik með spænska liðinu Ciudad Real þegar liðið mætir Kiel í seinni úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Ólafur er á leiðinni til þýska liðsins Rhein Neckar Löven eftir að hafa spilað í sex ár með spænska liðinu. „Við munum gefa allt okkar í þennan leik og ætlum að reyna að hefna tapsins í fyrri leiknum. Við gerðum mistök í þeim leik og spiluðum ekki okkar besta leik. Nú verðum við búnir að laga það sem miður fór og við getum vel unnið þennan leik," sagði Ólafur Stefánsson í viðtali á heimasíðu evrópska handboltasambandsins. Ólafur skoraði síðasta mark fyrri leiksins og minnkaði muninn í fimm mörk. Kiel vann leikinn 39-34 og Ciudad þarf því að vinna leikinn í dag með fimm mörkum skori Kiel 33 mörk eða minna en skori Kiel 35 mörk eða meira þá þarf Ciudad-liðið að vinna með sex mörkum. Ciudad Real vann Meistaradeildina í fyrra þar sem Ólafur skoraði 12 mörk í seinni leiknum þar sem liðið vann eftirminnilegan sigur í Kiel eftir að hafa tapað fyrri leiknum á heimavelli. „Ég mun taka margt með mér frá Spáni. Minningar um titla, gott fólk og góðan mat auk mikillar reynslu sem ég hef öðlast hér," segir Ólafur aðspurður um veruna á Spáni. „Fyrstu tvö árin voru erfið en síðustu fjögur árin hafa nánast verið einn samfelldur draumur. Það yrði síðan fullkominn endir að vinna Meistaradeildina," sagði Ólafur sem vann Meistaradeildina með Ciudad Real 2006 og 2008. Hann vann hana einnig með SC Magdeburg árið 2002 og getur því orðið Evrópumeistari í fjórða sinn í dag. Leikurinn í dag hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti Fleiri fréttir Valur - Fram | Meiðslahrjáð lið mætast í undanúrslitum Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Stelpurnar okkar í neðsta styrkleikaflokki fyrir EM Ómar með fjórtán og Gísli skoraði alltaf Uppgjörið: Ísland - Portúgal 32-24| Ísland er á leiðinni á EM EM-sæti í húfi: „Mjög spennt að sjá hvar við stöndum núna“ Rekinn án skýringa og ætlar í mál Úrslitaleikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“ Ótrúlegt flug undir stjórn Guðjóns og Haukur bjó til helming marka Löwen Stjarnan einum sigri frá því að halda sér uppi Margt sem þarf að laga Sjá meira