Karlmanni á þrítugsaldri var haldið föngnum í fjölbýlishúsi á Akureyri og beittur líkamsmeiðingum. Lögreglan á Akureyri rannsakar málið og hefur handtekið þrjá karlmenn vegna þess. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í dag. Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki fást frekari upplýsingar frá lögreglunni um það að svo stöddu.
Héldu karlmanni föngnum - Þrír í gæsluvarðhaldi
Jón Hákon Halldórsson skrifar