Ríkisstjórn Geirs hafnaði milljarða láni frá Rússum Guðjón Helgason skrifar 12. ágúst 2009 11:57 Victor I. Tatarintsev, sendiherra Rússlands á Íslandi.
Ríkisstjórn Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, falaðist bæði eftir og hafnaði síðan milljarða láni frá Rússum vegna kreppunnar. Þetta segir sendiherra Rússa á Íslandi. Í viðtali við vefsíðuna Netvarpið.is segir Victor I. Tatarintsev, sendiherra Rússlands á Íslandi, að Rússland hafi verið fyrsta landið, sem í upphafi október í fyrra hafi boðið aðstoð til handa Íslandi í efnahagshruninu eftir að þáverandi stjórnvöld á Íslandi hafi óskað eftir aðstoð. Um hafi verið að ræða lán upp á fjóra milljarða evra. „Fyrrum ríkisstjórn ykkar vildi ekki lánið og í staðinn fóru þið til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins," segir Tatarintsev. Sendiherrann telur að ef íslenska ríkisstjórnin hefði samþykkt að taka lánið sem hún hafi í upphafi óskað eftir væri staðan á Íslandi allt önnur í dag að hans mati. Kreppan væri ekki eins mikil. Í viðtalinu við Netvarpið segir Tatarintsev að Bandaríkin, Norðurlöndin og önnur ríki sem talist hafi til vina Íslands hafi snúið baki við Íslendingum. Það hafi Rússar ekki gert og þeir boðið aðstoð sína. Seðlabankinn sendi tilkynningu frá sér þann 7. október í fyrra um lán frá Rússum til Íslendinga. Það var dregið til baka samdægurs og sagt að viðræður myndu hefjast sem munu hafa staðið með hléum síðan þá. Í fréttum í rússneskum miðlum í júní var haft eftir staðgengli fjármálaráðherra Rússlands að ekki væri víst að íslenska ríkið myndi þiggja lán af Rússum fyrr en á næsta ári ef samningar um lánskjör nást. Verið sé að ræða um minna lán en rætt var í október, eða um 500 milljónir dala lán.
Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Fleiri fréttir Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Sjá meira